Fréttir


  • Iðunnarstaðir

5.2.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna verslunar og þjónustu að Iðunnarstöðum

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. maí 2019.

Í breytingunni felst að 4,2 ha landbúnaðarsvæði er breytt í verslun og þjónustu (1,6 ha) og í opið svæði til sérstakra nota (2,6 ha) þar sem rekin verður gisti- og veitingastarfsemi og þjónusta fyrir tjaldsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.