Fréttir


4.9.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna frístundabyggðar í landi Óss á Skógarströnd

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. ágúst 2019, breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. júní 2019.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F1 á jörðinni Ós á Skógarströnd stækkar úr 20 ha í 25 ha og lóðum fjölgað úr 10 í 18.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.