Fréttir


  • Sólheimar

29.6.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers í landi Sólheima

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. júní 2022, breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. júní 2022.

Í breytingunni felst að um 414 ha landbúnaðarsvæði í landi Sólheima er breytt í iðnaðarsvæði fyrir vindorkuver fyrir vinnslu allt að 150 MW. Svæðið er jafnframt skilgreint sem varúðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.