Fréttir


13.4.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna fjölgunar lóða á íbúðarsvæði ÍB14 í landi Eyrarlands

Skipulagsstofnun staðfesti, 13. apríl 2023, breytingu á Aðalskipulagi Eyjarfjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. feb. 2023.

Í breytingunni felst að samanlagður fjöldi lóða á reitum IB14 má vera allt að 15 í stað 10.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.