Fréttir


13.4.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna frístundabyggðar F17 í landi Samkomugerðis

Skipulagsstofnun staðfesti, 13. apríl 2023, breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-20230 sem samþykkt var í sveitarstjórn 2. febrúar 2023. Í breytingunni felst að bætt er við nýju frístundasvæði F17, þar sem heimilt er að vera með lóðir fyrir 3 frístundahús.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.