Fréttir


  • Aðveituæð, Eyjafjarðarsveit

1.10.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðasveitar vegna aðveituæðar við Þjóðveg 1

Skipulagsstofnun staðfesti 29. september 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 26. ágúst 2021.

Í breytingunni felst að bæta við aðveitulögn og stíg meðfram þjóðvegi nr. 1 frá sveitarfélagsmörkum við Svalbarsstrandahreppi í norðri að sveitarfélagsmörkum við Akureyri í vestri.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.