Fréttir


14.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar vegna frístundabyggðar á Kleifum í Ólafsfirði

Skipulagsstofnun staðfesti 13. maí 2019 breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. apríl 2019.

Í breytingunni felst að hluta landbúnaðarsvæðis á Kleifum í Ólafsfirði er breytt í tvö svæði fyrir frístundabyggð. Svæði F15 í landi Syðri-Gunnólfsár er 3,7 ha fyrir 12 hús og í landi Ytri-Gunnólfsár er svæði F16, 4 ha fyrir 16 hús. Ákvæði um hverfisvernd á Kleifum gildir áfram með viðbótum vegna frístundabyggðarinnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.