Fréttir


14.5.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna samfélagsþjónustu við Búðareyri, Reyðarfirði

Skipulagsstofnun staðfesti 14. maí 2024 breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. mars 2024.

Í breytingunni felst að skilgreint er tæplega 1 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu S-306 við Búðareyri á Reyðarfirði vegna áforma um stækkun heilsugæslu og uppbyggingu 8 íbúða í búsetukjarna fyrir fatlaða. Svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ-300 og miðsvæði M-300 minnka sem breytingunni nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.