Fréttir


  • Álfaás, Fljótsdalsh.

20.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna Álfaáss, gistiþjónusta í landi Ketilsstaða, Múlaþingi

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. apríl 2022, breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn Múlaþings 12. janúar 2022.

Í breytingunni felst að landnotkun á spildu sem hefur fengið nafnið Álfaás í landi Ketilsstaða er breytt úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir verslun og þjónustu V-34.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.