Fréttir


  • Staðsetning náma í Fellum og á Jökuldal

2.7.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna efnistöku í Fellum og á Jökuldal, Múlaþingi

Skipulagsstofnun staðfesti 2. júlí 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn Múlaþings 12. maí 2021.

Í breytingunni felst að bætt er við tveimur nýjum efnistökusvæðum, E140 við Hrúthamra í Jökuldal og E141 við Hof í Fellum.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.