Fréttir


9.2.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna efnistöku í landi Skeggjastaða

Skipulagsstofnun staðfesti 9. febrúar 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 – 2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. desember 2022.

Í breytingunni felst afmörkun nýrrar efnisnámu þar sem ráðgert er að taka um 3000m3 af grjóti fyrir rofvörn á um 200m kafla við Jöklu.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.