Fréttir


  • Loftmynd af Grund á Jökuldal

11.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna ferðaþjónustu að Grund á Jökuldal

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. mars 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir frístundabyggð F12 vestan Jökulsár, er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu V38. Jafnframt er skilgreint nýtt opið svæði til sérstakra nota O33, austan Jökulsár.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.