Fréttir


17.4.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna Fossgerðis

Skipulagsstofnun staðfesti 15. apríl 2019 breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. nóvember 2018.

Í breytingunni felst að 5,4 ha íbúðarsvæði B8 í Fossgerði er breytt í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var óveruleg breyting samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.