Fréttir


17.5.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna íþróttasvæðis, hverfisverndar og göngustígs á Egilsstöðum og í Fellabæ

Skipulagsstofnun staðfesti 16. maí 2023 breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. apríl 2023.

Í breytingunni felst skilgreining á íþróttasvæði utan við Dyngju á Egilsstöðum, hverfisvernd við Gálgaklett og göngustíg frá Fellabæ að Vök.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.