Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshrepps vegna efnistökusvæðis í Grjótá
Skipulagsstofnun staðfesti 26. apríl 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshrepps 2014-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 2. mars 2021.
Breytingin felst í að skilgreint er um 20.000 m2 efnistökusvæði við Grjótá vegna lagfæringa á vegslóðum að veitumannvirkjum Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar. Á umræddu svæði var opin náma við gerð veitunnar og áætluð efnistaka nú er allt að 10.000 m3.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.