Fréttir


  • Hnaus

1.4.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna Hnauss II

Skipulagsstofnun staðfesti, 27. mars 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. mars 2020.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar ÍB17 um 1,5 ha auk þess sem afmörkun frístundabyggðar F16 breytist. Skógræktar- og landgræðslusvæði minnkar.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.