Fréttir


  • Hrafnaklettar, Flóahreppi

3.7.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna Hrafnakletta

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. júlí 2020, breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. apríl 2020.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F44 í landi Hrafnakletta er felld út og þess í stað verður svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.