Fréttir


3.10.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna íbúðarbyggðar í landi Hnaus II

Skipulagsstofnun staðfesti 24. september 2019 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. apríl 2019.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni Mosató 1 úr landi Hnauss II er breytt úr frístundabyggð í íbúðarbyggð (ÍB17).

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.