Fréttir


  • Bitra

6.2.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna verslunar- og þjónustsvæðis VÞ8, við Skeiðavegamót (Bitra)

Skipulagsstofnun staðfesti 5. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að byggingarmagn er aukið í 7500 m2 og heimild til að byggja í áföngum allt að 250 herbergja hótel.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.