Fréttir


19.4.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Urriðaholts, verslunar- og þjónustusvæði 5.04

Skipulagsstofnun staðfesti 16. apríl 2021 breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. mars 2021.

Í breytingunni felst að heimiluð verður íbúðarbyggð á verslunar- og þjónustusvæði VÞ 5.04 í Urriðaholti. Íbúðarhúsnæði verður innan við 50% af heildarbyggingarmagni reitsins.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.