Fréttir


  • Torfastaðir 1, Grímsnes- og Grafningshreppur

30.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna frístundabyggðar í landi Torfastaða 1

Skipulagsstofnun staðfesti 29. mars 2022 breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. nóvember 2021.

Í breytingunni felst að um 25 ha af landbúnaðarsvæði er skilgreint sem frístundabyggð (F-11) í landi Torfastaða 1, vestan Álftavatns, þar sem gert er ráð fyrir allt að 30 frístundalóðum. Jafnframt er núverandi vatnsból Torfastaða 1 og 2 afmarkað á skipulagsuppdrætti.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.