Fréttir


  • Gufudalsvirkjun

7.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna gufuaflsvirkjunar á Folaldahálsi í landi Króks

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. apríl 2022, breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 2. febrúar 2022.

Í breytingunni felst að skilgreint er nýtt iðnaðarsvæði I11 á Folaldahálsi í landi Króks fyrir gufuaflsvirkjun allt að 3,9 MW að stærð.

Málsmeðferð var samkvæmt 1 mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.