Fréttir


30.5.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur vegna ferðaþjónustu við Geldingadali og athafnasvæðis í Hraunsvík

Skipulagsstofnun staðfesti, 23. maí 2022, breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 sem samþykkt var í bæjarstjórn 29. mars 2022.

Í breytingunni felst stefna um tvö svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ11 og VÞ12, afþreyingar- og ferðamannasvæði AF5, nýtt athafnasvæði AT6 ásamt skilgreiningu nýrra gönguleiða við Geldingadali.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.