Fréttir


9.3.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna aukinna byggingarheimilda á miðsvæði M3, Hamranesi

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. mars 2023, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. febrúar 2023.

Í breytingunni felst að uppbyggingarheimildir íbúða innan miðsvæðis M3 í Hamraneshverfi aukast úr 1500 íbúðum í allt að 1900 íbúðir auk 80 þjónustueininga fyrir hjúkrunarheimili.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.