Fréttir


9.8.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna breytinga á landnotkun í kjölfar niðurfellingar þynningarsvæðis í Kapelluhrauni

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. ágúst 2022, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarráði 16. júní 2022.

Í breytingunni felst að hluta iðnaðarsvæða I3 og I4 er breytt í athafnasvæði AT3 og AT4 og jafnframt er ákvæðum fyrir varúðarsvæði VA1 breytt.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.