Fréttir


21.7.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar vegna Áslands

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. júlí 2022, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. apríl 2022.

Í breytingunni felst að afmörkun íbúðarbyggðar ÍB11, 4. og 5. áfanga Áslands, er breytt og svæðið stækkað. Einnig er bætt við opnu svæði (OP20) og gerðar breytingar á göngu- og hjólastígum á svæðinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.