Fréttir


  • Sléttahlíð, Hfj.

27.12.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar vegna frístundabyggðar í Sléttuhlíð

Skipulagsstofnun staðfesti 22. desember 2021 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 8. desember 2021.

Í breytingunni felst að heimild fyrir gistiaðstöðu í flokki II, skv. h-lið 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, er bætt við í skipulagsskilmála um frístundabyggð í Sléttuhlíð og Klifsholti.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.