Fréttir


  • Hluti af aðalskipulagsuppdrætti Hörgársveitar

23.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar, Glæsibær

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. apríl 2020.

Í breytingunni felst að landgræðslu- og skógræktarsvæði á jörðinni Glæsibær er minnkað og þess í stað gert ráð fyrir íbúðarbyggð og efnistökusvæði. Stefna um svæði fyrir samfélagsþjónustu, Glæsibæjarkirkja, er útfærð nánar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.