Fréttir


6.10.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. október 2022, breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. ágúst 2022.

Í breytingunni felst stækkun svæðis fyrir íbúðarbyggð í landi Glæsibæjar um 8 ha, á kostnað landbúnaðarlands.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.