Fréttir


  • Skollagróf, Hrunamannahreppi

7.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna efnistökusvæðis í Skollagróf

Skipulagsstofnun staðfesti 7. apríl 2022 breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016- 2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. mars 2022.

Í breytingunni felst skilgreining 2 ha efnistökusvæðis í Skollagróf með heimild til að vinna 40.000 m³ efnis og haugsetningu samsvarandi magns af jarðvegi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.