Fréttir


28.2.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna skógræktarsvæðis og frístundabyggðar í landi Hlíðar, spildu 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 27. febrúar 2023, breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 23. júní 2022.

Í breytingunni felst stækkun á frístundabyggð F1 um 10 ha og skilgreining 65 ha skógræktar- og landgræðslusvæðis á jörðinni Hlíð, spildu 1.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.