Fréttir


19.3.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar

Skipulagsstofnun staðfesti, 16. mars 2020, breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. desember 2019.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F7b er minnkuð um rúmlega 7 ha og svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði í þeim tilgangi nýta gott landbúnaðarland til landbúnaðarnota.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.