Fréttir


  • Bjarkarás

20.11.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna íbúðarbyggðar að Bjarkarási

Skipulagsstofnun staðfesti, 16. nóvember 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. september 2020.

Í breytingunni felst að heimilt er að reisa einbýlishús á tveimur hæðum í stað einnar hæðar í íbúðarbyggðinni að Bjarkarási. Önnur skipulagsákvæði eru óbreytt.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.