Fréttir


  • Vatnshamarslína 2

26.3.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Vatnshamralínu

Skipulagsstofnun staðfesti, 26. mars 2020, breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. mars 2019.

Í breytingunni felst að Vatnshamralínu 2 er breytt úr loftlínu í jarðstreng milli mastra 4 og 24.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.