Fréttir


17.5.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna Bolungarvíkurlínu 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. maí 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. mars 2022.

Í breytingunni felst að við endurbyggingu Bolungarvíkurlínu 1 verður línunni hnikað til vesturs á stuttum kafla um Svarthamrahvilft.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.