Fréttir


12.4.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna Fjarðargötu 42 á Þingeyri. Verslun og þjónusta V7

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. apríl 2023, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. mars 2023.

Í breytingunni felst að athafnasvæði A3, sem nær yfir lóðina Fjarðargötu 42 á Þingeyri er breytt í verslunar og þjónustusvæði V7, með tilteknum takmörkunum.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.