Fréttir


27.6.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna íbúðarbyggðar á landfyllingu norðan Skutulsfjarðareyrar

Skipulagsstofnun staðfesti 26. júní 2023 breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. júní 2023.

Í breytingunni felst að skilgreind er íbúðarbyggð (Í25) á nýrri landfyllingu norðan Skutulsfjarðareyrar, útivistarsvæði (Ú17) er stækkað og gert er ráð fyrir hreinsistöð fráveitu (I45) á svæðinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.