Fréttir


21.11.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna iðnaðarsvæðis í landi Lauga í Súgandafirði

Skipulagsstofnun staðfesti 21. nóvember 2022 breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarráði 15. ágúst 2022.

Í breytingunni felst að skilgreint er um 0,2 ha iðnaðarsvæði I44 í landi Lauga í Súgandafirði vegna áforma um jarðhitanýtingu. Landbúnaðarsvæði minnkar til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.