Fréttir


9.2.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna íþróttahúss á Torfnesi

Skipulagsstofnun staðfesti þann 9. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. janúar 2018.

Í breytingunni felst að á íþróttasvæði á Torfnesi (Ú11) á Ísafirði er skapað svigrúm til byggingar fjölnota íþróttahúss.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

 

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.