Fréttir


  • Sunnuholt, Ísafjörður

4.11.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna stækkunar íbúðarbyggðar Í6 við Sunnuholt

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. nóvember 2021, breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. júní 2021.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar Í6 við Sunnuholt á Ísafirði til vesturs þar sem nýrri íbúðarlóð er bætt við. Landbúnaðarsvæði Góustaða minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.