Fréttir


9.7.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar vegna öryggissvæðis B

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. júlí 2021, breytingu á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030 sem samþykkt var í skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar 5. júlí 2021 og í utanríkisráðuneytinu 6. júlí 2021.

Í breytingunni felst að aukið er við byggingarheimildir á öryggissvæði B á Keflavíkurflugvelli.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.