Fréttir


  • Möðruvellir

16.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kjósarhrepps, frístundabyggð að Möðruvöllum 1

Skipulagsstofnun staðfesti 14. september 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. júlí 2021.

Með breytingunni er afmörkun frístundasvæðis F15c leiðrétt til samræmis við þegar stofnaðar lóðir og samsvarandi breyting gerð á afmörkun aðliggjandi skógræktarsvæðis SL2.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.