Fréttir


  • Eyrarkot_Kjósarhreppur

26.10.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kjósarhrepps vegna Eyrarkots, íbúðarbyggð, frístundabyggð og verslun- og þjónusta

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. október 2021, breytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 sem samþykkt var í hreppsnefnd 7. júlí 2021.

Í breytingunni felst afmörkun á nýju íbúðarsvæði fyrir allt að 8 lóðir, 5 ha frístundabyggð og 2 ha svæði fyrir verslun- og þjónustu í landi Eyrarkots.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.