Fréttir


  • Frístundabyggð, Nesvegur, Kjós

6.5.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kjósarhrepps vegna frístundabyggðar við Nesveg

Skipulagsstofnun staðfesti 5. maí 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. mars 2022.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F4a við Nesveg er stækkuð um 1,5 ha og lóðum er fjölgað úr fimm í átta.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.