Fréttir


7.10.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kópavogsbæjar vegna leikskóla við Skólatröð

Skipulagsstofnun, staðfesti 5. október 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem samþykkt var í bæjarstjórn 13. september 2022.

Í breytingunni felst stækkun reits fyrir samfélagsþjónustu (S6) við Skólatröð þar sem gert er ráð fyrir leikskóla.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.