Fréttir


  • Traðarreitur eystri, þróunarreitur ÞR-6

19.10.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kópavogsbæjar vegna Traðarreits eystri, þróunarreits ÞR-6

Skipulagsstofnun staðfesti 15. október 2020 breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. september 2020.

Í breytingunni felst að heimiluð er enduruppbygging á Traðarreit-eystri fyrir íbúðarhús þar sem verða byggðar allt að 180 íbúðir í tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishúsum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.