Fréttir


28.3.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna aukinna byggingarheimilda í íbúðarbyggð 330-Íb, Háeyri

Skipulagsstofnun staðfesti 28. mars 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. mars 2023.

Í breytingunni felst fjölgun á íbúðum á svæði Háeyrar 330-Íb úr tveimur í fjórar. Þéttleiki fullbyggðs svæðis fer úr 6,7 í 13,3 íb/ha.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.