Fréttir


  • Þorisholt

5.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 vegna Þórisholts, verslun og þjónusta

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. apríl 2022, breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. febrúar 2022.

Í breytingunni felst heimild fyrir ferða- og gistiþjónustu innan nokkurra lóða í landi Þórisholts.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.