Fréttir


  • Túnahverfi, Vík

5.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps, stækkun Túnahverfis í Vík

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. apríl 2022, breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. febrúar 2022.

Í breytingunni felst stækkun íbúðabyggðarinnar ÍS1 um 1,3 ha og opið svæði minnkar sem því nemur. Íbúðarbyggðin verður 5,4 ha og gert er ráð fyrir allt að 90 íbúðum á svæðinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.