Fréttir


5.6.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna Hjörleifshöfða, afþreyingar- og ferðamannasvæðis

Skipulagsstofnun staðfesti 5. júní 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. janúar 2024.

Í breytingunni felst að heimilað verður að byggja allt að 50 m2 hús innan afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF14 við Hjörleifshöfða.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.